02.08.11 - 17:02
Magnús Már Einarsson
Jóhann Andri og Vigfús Geir í HK (Staðfest)

Vigfús Geir Júlíusson.

Mynd: Fótbolti.net - Elvar Geir Magnússon

HK krækti í tvo leikmenn áður en félagaskiptaglugginn lokaði í fyrradag en Jóhann Andri Kristjánsson og Vigfús Geir Júlíusson gengu þá til liðs við félagið.
Vigfús Geir er 22 ára gamall varnarmaður en hann kemur til HK frá Hamar í Hveragerði. Hann hefur spilað með Hamar undanfarin þrjú ár en var fram að því í yngri flokkum Fram.

Jóhann Andri er 19 ára sóknarmaður sem kemur í láni frá Fylki. Hann hefur verið í leikmannahópi Fylkis í ár en ekki fengið tækifæri í leik í úrvalsdeildinni.
Með komu þessara leikmanna komu alls sex leikmenn til liðs við HK í þessum félagaskiptaglugga. Damir Muminovic og Frosti Bjarnason úr Ými, Stefán Eggertsson úr Val, Farid Zato-Arouna úr FH og svo þeir Vigfús og Jóhann.
Á móti fór aðeins einn leikmaður frá HK í glugganum, Hólmbert Aron Friðjónsson sem fór í Fram.
HK er sem stendur í botnsætinu í fyrstu deildinni en liðið er níu stigum frá öruggu sæti.

Heimild: Heimasíða HK