Fotbolti.net
02.08.11 - 14:07
Hörður Snævar Jónsson

Jonathan Spector til Birmingham (Staðfest)

Jonathan Spector til Birmingham (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Birmingham hefur gengið frá samningum við varnarmanninn Jonathan Spector.
Spector kemur á frjálsri sölu en hann varð samningslaus hjá West Ham eftir síðustu leiktíð.

Þessi 25 ára gamli leikmaður frá Bandaríkjunum getur einnig leikið sem miðjumaður.

Þetta er sjöundi leikmaðurinn sem Chris Hughton stjóri Birmingham fær til félagsins í sumar.

,,Jonathan er leikmaður sem hefur reynslu af því að spila í ensku úrvalsdeildinni og með landsliðinu svo hann er góður liðstyrkur,\" sagði Hughton.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.