02.09.09 - 13:24
Magnús Már Einarsson
Richard Dunne til Aston Villa (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Aston Villa hefur gengið frá kaupunum á Richard Dunne varnarmanni Manchester City.
Leikmaðurinn kostar Villa sex milljónir punda en Dunne hafði samþykkt fjögurra ára samning áður en að félagaskiptaglugginn í Englandi lokaði í gær.
Enska úrvalsdeildin staðfesti félagaskiptin ekki strax en eftir að hafa farið yfir öll gögn þá hafa félagaskiptin núna gengið í gegn.
,,Vonandi get ég verið hluti af hópi sem að reynir að ná sæti í Meistaradeildinni,\" sagði Dunne.
Hann er sjöundi leikmaðurinn sem Aston Villa fær í sumar en félagið hefur eytt 40 milljónum punda í þessa leikmenn.

Heimild: BBC