Fotbolti.net
02.09.10 - 09:11
Magnús Már Einarsson

David Carney til Blackpool (Staðfest)

David Carney til Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur keypt ástralska miðjumanninn David Carney frá Twente fyrir óuppgefna upphæð.
Blackpool náði að ganga frá kaupunum áður en félagaskiptaglugginn lokaði í fyrradag en formleg staðfesting á því fékkst hjá ensku úrvalsdeildinni í gærkvöldi.

Carney, sem er 26 ára, hefur meðal annars verið á mála hjá Everton, Sheffield United og Norwich á ferli sínum.

,,Þetta hafa verið annasamir 24 klukkustundir en ég er ánægður með að þetta sé klárt og núna hlakka ég til að fara að spila,\" sagði Carney.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.