Fotbolti.net
02.09.10 - 10:14
Magnús Már Einarsson

Kingson til Blackpool (Staðfest)

Kingson til Blackpool (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Blackpool hefur samið við markvörðinn Richards Kingson en hann var án félags og getur því komið til félagsins þrátt fyrir að félagaskiptaglugginn sé lokaður.
Blackpool ákvað að semja við leikmanninn þar sem markvörðurinn Paul Rachubka er frá keppni vegna meiðsla.

Kingson hefur renyslu af því að leika í ensku úrvalsdeildinni því hann hefur áður verið á mála hjá Wigan og Birmingham.

Kingson hefur einnig reynslu af alþjóðlegum vettvangi því hann er landsliðsmarkvörður Ghana og lék með liðinu á HM í sumar.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.