02.09.11 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Jordan Slew til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn náði að krækja í framherjann Jordan Slew rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði í fyrradag.
Enska úrvalsdeildin staðfesti síðdegis í gær að félagaskiptin náðu að ganga í gegn á réttum tíma.

Slew skrifaði undir fjögurra ára samning en hann kemur til Blackburn frá Sheffield United á 1,1 milljón punda.
Sú upphæð gæti hækkað ef Slew stendur sig vel hjá Blackburn næstu árin.
Hinn 18 ára Slew er einn af þremur leikmönnum sem Steve Kean fékk til Blackburn á lokadegi félagaskiptagluggans en Yakubu kom einnig frá Everton og varnarmaðurinn Scott Dann kom frá Birmingham.

Heimild: Sky