Fotbolti.net
02.10.06 - 08:25
Hafliði Breiðfjörð

Margrét Lára Viðarsdóttir í viðtali um félagaskiptin til Duisburg

Margrét Lára ásamt Elísabetu Gunnarsdóttur sem þjálfaði hana hjá Val en myndin er tekin í Duisburg er þær skoðuðu aðstæður hjá þýska félaginu.

Margrét Lára ásamt Elísabetu Gunnarsdóttur sem þjálfaði hana hjá Val en myndin er tekin í Duisburg er þær skoðuðu aðstæður hjá þýska félaginu.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Eins og við greindum frá í gærkvöld hefur Margrét Lára Viðarsdóttir sem leikið hefur með Val undanfarin tvö ár gert tveggja ára samning við þýska félagið Duisburg. Fótbolti.net hafði samband við Margréti Láru í kvöld og rædddi við hana um félagaskiptin.

Sjá einnig: Margrét Lára Viðarsdóttir til Duisburg (Staðfest)
,,Mér líst bara alveg ótrúlega vel á þetta. Þetta er fjölskylduvænn klúbbur og þjálfarinn, þjálfaraliðið og leikmennirnir leit allt mjög vel út. . Mér líst ótrúlega vel á þetta og er mjög spennt fyrir þessu," sagði Margrét Lára en hún hafði skoðað aðstæður hjá þýska félaginu um miðjan september.

Hjá Duisburg er fyrir þýska landsliðskonan Viola Odebrecht en hún lék fimm leiki með Val í Landsbankadeildinni í sumar en hafði verið búin að semja við Duisburg áður en hún gerði stutt stopp á Íslandi og varð því að fara aftur á miðju sumri. Margrét Lára sagði að það hafi haft áhrif á ákvörðun sína að fyrrum liðsfélagi sinn er hjá félaginu.

,,Já í sjálfu sér hafði það áhrif. Ég þekki náttúrulega Violu fyrir. Hún er náttúrulega frábær leikmaður og mér fannst það sýna vel styrkleikann í liðinu að hún var ekki í byrjunarliðinu í síðasta leik," sagði Margrét Lára.

Hún hafði í fyrra skoðað aðstæður hjá Potsdam, liðinu sem Valur mætti í Evrópukeppninni á síðustu leiktíð en hafnaði samningi hjá því félagi í nóvember í fyrra. Henni fannst áhugaverðara að fara til Duisburg.

,,Þetta er rosalega sterkt lið og munurinn á þessu liði og Potsdam er að það tala flestir ensku þarna og þarna er allt miklu líkara því sem maður á að venjast. Potsdam er í Austur Þýskalandi og þar tala fáir ensku. Ég fann mig einhvernveginn miklu betur hjá Duisburg. Ég átti auðvelt með að tjá mig því þjálfarinn talaði ensku og stjórnarmennirnir, mér fannst það muna mjög miklu."

,,Í Austur Þýskalandi þar sem ég var síðast er enskan bara ekkert töluð eins mikið. Það eru margir landsliðsmenn í Duisburg og þær tala flest allar ensku. Mér fannst það skipta ótrúlega miklu máli að ég finndi að ég gæti tjáð mig og fólk skildi mig og ég væri ekki eins og ´Palli einn í heiminum.´"


Eins og Margrét Lára kom inná í viðtalinu hefur Viola Odebrecht ekki náð að festa sig í sessi í byrjunarliði Duisburg þrátt fyrir að vera frábær leikmaður og þýsk landsliðskona. Því er greinilegt á öllu að Margrét mun þurfa að takast á við mikla samkeppni hjá sínu nýja félagi.

,,Það er eitthvað sem ég þarf á að halda," sagði Margrét Lára. ,,Það er mikil samkeppni að komast í lið og hóp og það er bara mjög spennandi að geta farið í svoleiðis baráttu."

Í Landsbankadeildinni í sumar fór Margrét Lára á kostum og skoraði 34 mörk í 13 leikjum sem Valur spilaði í sumar. Við spurðum hana hvort íslenska deildin hafi ekki verið orðin of auðveld fyrir hana.

,,Nei ég segi það nú ekki, ég þurfti nú að hafa mikið fyrir þessu í sumar svo ég held að það sé ekki. En ég held að það sé nauðsynlegt fyrir mig að breyta til og fá erfiðari áskorun."

Eins og allir þekkja er mikill peningur í karla fótboltanum og leikmenn sem komast að hjá stórliðum Evrópu fá ríkulega borgað fyrir og láta mikið á sér bera. Það er ekki þannig í kvennaboltanum og Margrét Lára býst við að hún muni jafnvel vinna með boltanum í Þýskalandi.

,,Ég þarf örugglega að vinna eitthvað þegar ég er búin að ná málinu og svoleiðis. En ég held að ég muni samt hafa það ágætt þó maður verði enginn milljónamæringur á þessu. Maður fær bara nóg til að lifa og þarf ekkert að vera í vandræðum með það," útskýrir hún.

,,Svo er það bara þannig að ég er að fara þarna út og ég er ekkert nafn þarna úti og ég þarf bara að sanna mig eins og aðrir til að hækka mig í samningi. Það er líka markmið mitt að sanna mig svo þeir vilji halda mér. Þá gera þeir alltaf betur við leikmenn sína ef þeir virkilega vilja halda þeim."

,,Svo það er bara undir mér komið að fá betri samning. Ég er bara einhver stelpa frá Íslandi sem þeir þekkja varla núna. Ég þarf bara að leggja ótrúlega hart að mér til að komast í lið og annað."


Þrátt fyrir góða frammistöðu á erlendri grundu með landsliðum Íslands er Margrét Lára ekki þekkt nafn í Þýskalandi á meðal þeirra sem fylgjast með boltanum þar. Hún segir Þjóðverja ekki leita mikið út fyrir landið eftir leikmönnum.

,,Það eru kannski einhverjir leikmenn sem kannast við mig frá U-21 árs landsliðinu og þannig. Norðurlandaþjóðirnar eru miklu nánari hvor annarri en Þýskaland er svolítið afskekkt. Það eru fáir útlendingar í deildinni og þeir eru ekkert mikið fyrir það að taka erlenda leikmenn til sín. Þeir eru svolítið mikið fyrir að hafa bara Þjóðverja enda skilur maður það vel, þær eru Heims- og Evrópumeistarar svo ég skil að þeir telji sína leikmenn vera besta. "

Margrét Lára spilaði í tvö ár hjá Val og varð með liðinu Íslands- og bikarmeistari í sumar. Hún er nú á förum frá félaginu og þakkaði að lokum fyrir tíma sinn þar.

,,Ég vil auðvitað þakka Val allt sem þeir hafa gert fyrir mig. Þetta hefur verið góður tími sem ég hef átt á Hlíðarenda. Ég hef bætt mig mikið sem leikmaður þar og ég á eftir að sakna stelpnanna, þjálfaranna og stuðningsmanna ótrúlega mikið. Valur er frábært félag sem fólk má vera stolt að spila fyrir."
Sonja Fuss, Margrét Lára og Viola Odebrecht. Sonja Fuss leikur með Duisburg einnig og á að baki 50 landsleiki. Viola lék með Val í sumar og er hjá Duisburg í dag.

Sonja Fuss, Margrét Lára og Viola Odebrecht. Sonja Fuss leikur með Duisburg einnig og á að baki 50 landsleiki. Viola lék með Val í sumar og er hjá Duisburg í dag.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Elísabet, Viola og Margrét í Duisburg.

Elísabet, Viola og Margrét í Duisburg.

Canon

Mynd: Úr einkasafni

Margrét Lára fagnar bikarmeistaratitli með Val í sumar.

Margrét Lára fagnar bikarmeistaratitli með Val í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Gísli Baldur

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.