02.10.09 - 09:56
Magnús Már Einarsson
Hólmar Örn til Cheltenham á láni (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Hólmar Örn Eyjólfsson, varnarmaður West Ham, er farinn til Cheltenham Town á láni.
Cheltenham leikur í fjórðu efstu deild á Englandi en Hólmar verður hjá liðinu í einn mánuð.
Hólmar kom til West Ham frá HK árið 2008 og hefur síðan þá leikið með vara og unglingaliði félagsins. Í síðustu viku æfði hann síðan með aðalliði félagsins,
,,Ég æfði þrisvar með aðalliðinu í síðustu viku. Það gekk vel og ég vonast til að fá að æfa með þeim aftur, við sjáum til hvað gerist í kjölfarið,\" sagði Hólmar Örn við WHUTV.
,,Það er gaman að spila gegn leikmanni eins og Carlton Cole. Reyndir varnarmenn í úrvalsdeildinni hafa átt í vandræðum gegn honum svo það er gaman að sjá hvernig þér gengur með hann. Ég held að ég hafi staðið mig ágætlega.\"