Fotbolti.net
02.10.10 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Andri Marteinsson þjálfar Hauka áfram (Staðfest)

Andri Marteinsson þjálfar Hauka áfram (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Andri Marteinsson verður áfram þjálfari Hauka en hann hefur skrifað undir nýjan tveggja ára samning við félagið.
Frá þessu var greint á vef Hauka í gær en Andri hefur verið við stjórnvölinn hjá Haukum undanfarnar fjórar leiktíðir og kom liðinu úr 2. deild upp í þá efstu.

Liðið féll úr Pepsi-deildinni í sumar og leikur því í 1. deild á komandi leiktíð.

Félagið segir markmiðið ða koma liðinu aftur í deild hinna bestu þar sem það telur sig eiga heima eftir lokasprettinn í deildinni þar sem það fékk flest stig sín í sumar.

Heimild: Haukar.is

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.