02.10.10 - 10:44
Hafliði Breiðfjörð
Srdjan Rajkovic í Þór (Staðfest)

Srdjan Rajkovic er kominn í Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Srdjan Rajkovic er kominn í Þór.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Nýliðar Þórs í Pepsi-deild karla urðu fyrsta liðið til að tryggja sér leikmann eftir að nýliðnu tímabili lauk því markvörðurinn Srdjan Rajkovic er kominn til félagsins frá Fjarðabyggð.
Rajkovic hefur leikið frábærlega með Fjarðabyggð undanfarin ár og bar fyrirliðabandið þar að undanförnu.
Hann er 34 ára gamall Serbi sem hefur leikið með Fjarðabyggð síðan fyrir aldamót. Hann hefur spilað vel yfir 200 leiki á Íslandsmótinu með Einherja, KVA, Neista og Fjarðabyggð.
Þrátt fyrir að vera markvörður hefur hann skorað fjögur mörk fyrir Fjarðabyggð, síðast í VISA-bikarnum gegn Spyrni í sumar þar sem hann skoraði úr vítaspyrnu.

Heimild: Vefur Þórs