Fotbolti.net
02.11.07 - 15:31
Hafliði Breiðfjörð

Ronald Koeman tekur við Valencia (Staðfest)

Ronald Koeman.

Ronald Koeman.

Canon

Mynd: Getty Images

Hollendingurinn Ronald Koeman skrifaði í dag undir tveggja og hálfs árs samning við Valencia um að gerast þjálfari liðsins en hann hætti fyrr í vikunni sem þjálfari PSV Eindhoven.
Koeman sem er 44 ára gamall þekkir vel til á Spáni síðan hann var leikmaður með Barcelona. Hann tekur við starfinu af Quique Sanchez Flores sem var rekinn eftir 3-0 tap Valencia gegn Sevilla á sunnudag.

Sanchez Flores var þriðji stjórinn sem var rekinn frá Valencia á þremur árum en Antoino Lopez og Claudio Ranieri höfðu ekki uppfyllt væntingar þeirra en á undan þeim hafði Rafael Benítez náð góðum árangri með liðið en hætti til að taka við Liverpool.

sagði Juan Soler forseti Valencia. ,,Við erum vissir umað við verðum í góðum höndum. Hann þekkir hver markmið Valencia eru, hann þekkir hópinn og hann mun færa okkur árangurinn sem við viljum."

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.