02.11.09 - 13:25
Hafliði Breiðfjörð
Stephen Appiah til Bologna (Staðfest)

Stephen Appiah.

Mynd: Getty Images

Stephen Appiah.

Mynd: Getty Images
Bologna hefur samið við Ghanamanninn Stephen Appiah en miðjumaðurinn var félagslaus og gat því gengið í raðir félagsins þó glugginn sé lokaður.
Appiah sem er 28 ára gamall hefur verið félagslaus síðan hann hætti hjá Fenerbahce í Tyrklandi á síðasta ári.
Hann hafði áður leikið á Ítalíu með Udinese, Brescia og Juventus.
Hann hefur ekkert leikið fótbolta síðan í júní 2008 vegna meiðsla á hné en fór á reynslu hjá Tottenham í janúar með hálfs árs samning í huga.
Hann hélt alltaf að spila með landsliði sínu þrátt fyrir að vera félagslaus og var síðast orðaður við Shcalke í Þýskalandi í október.

Heimild: Sky