Fotbolti.net
02.11.09 - 19:22
Magnús Már Einarsson
Ítalska deildin

David Beckham fer til AC Milan í janúar (Staðfest)

David Beckham fer til AC Milan í janúar (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

David Beckham mun ganga til liðs við AC Milan á láni frá Los Angeles Galaxy þegar að félagaskiptaglugginn opnar í janúar.
Búið er að ganga endanlega frá samningum þess efnis en það hefur verið ljóst í nokkurn tíma að Beckham myndi væntanlega fara til AC Milan á láni.

Þessi 34 ára gamli miðjumaður vonast til að með þessum vistaskiptum muni hann eiga meiri möguleika á að vera í landsliðshópi Englendinga á HM næsta sumar.

,,Ég þarf að eiga sem bestan möguleika á að komast í hópinn á HM og að spila með Milan mun hjálpa mér í því,\" sagði Beckham í yfirlýsingu sem hann sendi frá sér í kvöld.

Beckham þekkir vel til hjá AC Milan því hann var einnig á láni hjá félaginu síðari hlutann á síðustu leiktíð.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.