Fotbolti.net
03.01.07 - 12:36
Stefán Guðberg Sigurjónsson

Jan Schlaudraff til Bayern Munchen í sumar (Staðfest)

Schlaudraff í leik með þýska landsliðinu

Schlaudraff í leik með þýska landsliðinu

Canon

Mynd: Getty Images

Jan Schlaudraff, sóknarmaður Alemannia Aachen, hefur ákveðið að ganga til liðs við þýsku meistaranna Bayern Munchen næsta sumar.
Schlaudraff, sem er 23 ára gamalla sóknarmaður, skrifar undir þriggja ára samning við Bayern þrátt fyrir áhuga Werder Bremen og Borussia Dortmund.

Hann var að vonum ánægður þegar greint var frá þessu á blaðamannafundi í morgun: ,,Ég held að þetta sé rétta skrefið sem ég get tekið fyrir íþróttaferilinn minn. Ég hef tækifæri á að þroskast í Munchen og spila á alþjóðlegum vettvangi," sagði Schlaudraff.

,,Hann er eitt mesta efni Þýskalands og við erum ánægðir með að hann valdi okkur," sagði Karl-Heinz Rummenigge, stjórnarformaður félagsins.

Schlaudraff á ennþá eitt ár eftir af samningnum sínum við Alemannia en klásúla í samningnum segir að hann megi fara frá þeim í lok tímabilsins fyrir óuppgefna upphæð.

Heimild: AP

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.