03.01.08 - 08:49
Hafliði Breiðfjörð
Ian Jeffs til Fylkis (Staðfest)

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Enski miðjumaðurinn Ian Jeffs er genginn í raðir Fylkismanna og skrifaði undir samnings þess efnis við félagið nú í dag. Samningurinn er til þriggja ára.
Jeffs átti eitt ár eftir af samningi sínum við sænska félagið Örebro fékk sig lausan frá félaginu.
Ian Jeffs er 25 ára gamall Englendingur sem var lánaður frá Örebro til ÍBV á síðari hluta Íslandsmótsins í sumar.
Hann var frábær með liðinu í 1. deildinni og skoraði níu mörk í þeim 11 leikjum sem hann lék í sumar þrátt fyrir að vera miðvallarleikmaður og var markahæsti leikmaður liðsins.
Hann var svo valinn í lið ársins í 1. deildinni í vali fyrirliða og þjálfara sem Fótbolti.net stóð fyrir.
Jeffs sem er 25 ára Englendingur lék með ÍBV 2003, 2004 og 2005 eftir að hafa verið á mála hjá Crewe Alexandra í heimalandinu.
Hann gekk til liðs við Örebro eftir tímabilið 2005 og hjálpaði sænska liðinu að komast upp í efstu deild. Jeffs fékk fá tækifæri hjá liðinu á þessu ári og gekk þá til liðs við ÍBV á lánssamningi út tímabilið.
Ian Jeffs er þriðji leikmaðurinn sem Fylkir fær til liðs við sig síðan tímabilinu lauk í Landsbankadeildinni í haust. Áður hafði Allan Dyring komið frá FH og Viðar Guðjónsson frá Víkingum.
Þeir hafa misst þrjá leikmenn líka, Christian Christiansen fór til heimalandsins Danmerkur, Albert Brynjar Ingason fór í Val og Páll Einarsson hefur lagt skóna á hilluna.