03.02.08 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð
Agnar Bragi í Selfoss frá Fylki (Staðfest)

Frá undirskriftinni í gær. Ómar er lengst til vinstri og Agnar Bragi við hlið hans.

Mynd: Selfoss

Agnar Bragi Magnússon varnarmaðurinn efnilegi skrifaði undir tveggja ára samning við Selfoss í gær . Agnar Bragi, sem verður 21 árs í dag, 3. febrúar, hefur allan sinn feril leikið með Fylki, fyrir utan að hafa verið lánaður í Selfoss um mitt síðasta sumar.
Með Selfyssingum lék hann 8 leiki í 2. deildinni í fyrra og skoraði 1 mark í þeim leikjum. Aagnar Bragi hefur spilað með bæði U-17 og U-19 ára landsliðum Íslands.
,,Ég valdi Selfoss því Zoran (þjálfari) og Ómar (aðstoðarþjálfari) eru klassa þjálfarar og öll umgjörð klúbbsins er mjög góð," sagði Agnar Bragi í gær. ,,Svo er leikmannahópurinn samstiltur og skemmtilegur. Selfoss er félag á uppleið,” bætti hann við.
Ómar Valdimarsson aðstoðarþjálfari lýsti yfir mikilli ánægju með að Agnar Bragi væri kominn. ,,Bragi hefur allt til að verða mjög góður leikmaður. Hann hefur góða tækni og er stór, sterkur og fljótur. Ekta miðvörður sem ég og Zoran eigum eftir að slípa aðeins til,” sagði Ómar að sama tilefni.