03.02.09 - 06:00
Magnús Már Einarsson
Carlos Menseguez til WBA (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
WBA krækti í argentínska kantmanninn Juan Carlos Menseguez áður en félagaskiptaglugginn lokaði í gær en félagið fékk hann á láni út leiktíðina frá San Lorenzo.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur áður leikið í Evrópu því hann var á mála hjá þýska félaginu Wolfsburg frá 2004-2007.
WBA fékk einnig miðjumanninn Youssouf Mulumbu á láni frá PSG í gær en liðið er í harðri fallbaráttu í ensku úrvalsdeildinni.
Menseguez og Mulumbu verða ekki með WBA gegn Burnley í enska bikarnum í kvöld en þeir ættu að geta leikið sinn fyrsta leik á laugardag þegar að Newcastle kemur í heimsókn á The Hawthorns.

Heimild: BBC