Fotbolti.net
03.02.09 - 06:00
Hafliði Breiðfjörð

Kristrún Kristinsdóttir í Fylki (Staðfest)

Kristrún fagnar marki með ÍR í sumar.

Kristrún fagnar marki með ÍR í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Kvennaboltinn
Fylkir fékk í gærkvöld góðan liðsstyrk fyrir baráttuna í Landsbankadeild kvenna næsta sumar þegar Kristrún Kristinsdóttir fyrirliði ÍR gekk til liðs við félagið.
Kristrún er tvítugur varnarmaður sem hefur leikið með meistaraflokki ÍR síðan sumarið 2003. Hún hefur gert tveggja ára samning við Fylki.

Á þeim tíma hefur hún leikið 69 leiki fyrir liðið og skorað í þeim sex mörk. Hún var lykilmaður í liðinu sem tryggði sér sæti í Landsbankadeildinni síðasta haust eftir umspilssæti við Hött og vann svo 1. deildina eftir úrslitaleik gegn GRV.

Kristrún er sjöundi leikmaðurinn sem Fylkir fær til liðs við sig frá því síðasta sumar. Áður höfðu komið Danka Podovac frá Keflavík, Lidija Stojkanovic frá HK/Víking, Rúna Sif Stefánsdóttir frá Fjölni, Anna Sigurðardóttir frá Þrótti, Fjolla Shala frá Leikni og Anna Björg Björnsdóttir sem sneri aftur heim frá Danmörku.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.