Fotbolti.net
03.02.09 - 09:03
Hafliði Breiðfjörð

Abel Resino tekur við Atletico Madrid (Staðfest)

Abel Resino.

Abel Resino.

Canon

Mynd: Getty Images

Atletico Madrid hefur ráðið Abel Resino sem nýjan þjálfara liðsins en hann tekur við starfinu af Javier Aquirre sem hætti eftir að hafa komist að samkomulagi um að binda enda á feril sinn.
Enrique Cerezo forseti félagsins staðfesti þetta í viðtali við Cadena Ser útvarpsstöðina en hann sagði að félagið hafi komist að samkomulagi við Resino sem er fyrrverandi markvörður félagsins um að stýra liðinu en hann hefur að undanförnu þjálfað 2. deildarlið Castellon.

,,Við höfum valið Abel því við teljum að hann sé rétta lausnin í þessari stöðu,\" sagði Cerezo.

Atletico hefur ekki unnið leik á árinu og er komið í sjöunda sæti deildarinnar eftir 2-1 tap gegn Real Valladolid á sunnudag.

Heimild: Reuters

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.