Fotbolti.net
03.02.09 - 09:37
Magnús Már Einarsson

Elmar Dan Sigþórsson til Tornado Måløy (Staðfest)

Aðalástæðan fyrir flutningum góð vinna í Noregi

Elmar Dan í baráttunni við Jakob Spangsberg í sumar.

Elmar Dan í baráttunni við Jakob Spangsberg í sumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Magnús Már Einarsson

Fyrirliði KA-manna í fyrstu deildinni, Elmar Dan Sigþórsson, hefur skrifað undir tveggja ára samning við norska 3. deildarliðið Tornado Måløy FK og leikur því ekki áfram með KA.
Í sumar lék Elmar Dan fimmtán leiki í deild og einn í VISA-bikarnum en í þeim skoraði hann tvö mörk. Fyrir sumarið hjá KA fékk hann nýtt hlutverk en hann lék í stöðu miðvarðar í allt sumar eftir að hafa leikið mun framar á vellinum á árum áður.

Í samtali við Morgunblaðið segist Elmar Dan þó vera að fara út vegna vinnu sem honum bauðst úti en ekki einungis til að spila fótbolta. ,,Mér bauðst bara mjög gott starf í Måløy og það er aðallega þess vegna sem við fjölskyldan erum að fara út en ekki út af fótboltanum. En mér bauðst líka að spila með liði bæjarins og mun því ekki spila með KA í sumar,\" sagði hann við Morgunblaðið í gær.

Hann lék æfingaleik með liðinu gegn liðinu Vik snemma í janúar sem endaði með 4-4 jafntefli.

Elmar er lærður vélstjóri og mun starfa á vélaverkstæði í Måløy sem er lítill bær skammt frá Bergen. Hann flytur út ásamt fjölskyldu sinni í byrjun mars.

Hér á landi hefur hann leikið með KA, Fjarðabyggð og Víking R. en alls á hann að baki 99 leiki fyrir KA og þar af 45 í úrvalsdeild.

Heimild: Morgunblaðið | Vefsíða KA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.