03.02.09 - 17:14
Hörður Snævar Jónsson
Andrei Arshavin til Arsenal (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Arsenal hefur staðfest félagaskipti Andrei Arshavin til félagisns frá Zenit frá Pétursborg og því eru þessari endalausu sögu um framtíð hans lokið. Samningur Arshavin er til þriggja og hálfs árs.
Arshavin stóðst læknisskoðun og komst að samkomulagi við félagið um kaup og kjör í gær.
Viðræður félagana hafa tekið langan tíma en allt frá því að glugginn opnaði hefur Arsenal viljað fá hann.
Eftir frammistöðu Arshavin með Rússlandi á EM síðasta sumar hafa mörg félög viljað fá hann en vegna þess hversu hár verðmiði var á honum hættu mörg félög við.
Arsenal er talið þurfa að greiða allt að 15 milljónir punda fyrir þennan 27 ára leikmann.
,,Arsenal Football Club er ánægt með að tilkynna að Andrei Arshavin hefur gengið til liðs við félagið frá Zenit frá Pétursborg. Hann gerir langtíma samning en kaupverð er ekki gefið upp,\" sagði í yfirlýsingu frá Arsenal.

Heimild: Sky