Auknar líkur á að Guardiola hætti með City - Alonso, Maresca og Fabregas á lista - Rashford vill ekki snúa aftur til Man Utd
banner
   þri 03. febrúar 2026 16:44
Kári Snorrason
Fer frá Íslendingaliði og tekur við Pisa (Staðfest)
Hiljemark er 33 ára gamall.
Hiljemark er 33 ára gamall.
Mynd: EPA
Oscar Hiljemark hefur verið ráðinn nýr þjálfari Pisa. Sænski stjórinn tekur við starfinu eftir að ítalska félagið lét Alberto Gilardino fara á sunnudaginn.

Hiljemark kemur til Pisa frá Elfsborg, en hann hafði stýrt sænska félaginu í um eitt og hálft ár. Þar stýrði hann Júlíus Magnússyni og Ara Sigurpálssyni.

Elfsborg hafnaði í áttunda sæti í Allsvenskan á síðasta tímabili en félagið sótti Íslendingana tvo fyrir síðasta tímabil. Þá var greint frá því í síðustu viku að Elfsborg væri að festa kaup á Skagamanninum Gabríeli Snæ Gunnarssyni.

Sænska deildin hefst í byrjun apríl og stendur liðið nú í þjálfaraleit, þar sem Hiljemark tók allt starfsteymið sitt með sér til Ítalíu.

Nýliðar Pisa eru í næst neðsta sæti ítölsku Serie A með 14 stig, fjórum stigum frá öruggu sæti eftir 23 umferðir.


Smelltu hér til að kaupa áskrift að Livey

Athugasemdir
banner
banner