Varnarmaðurinn Andrias Edmundsson skrifaði nafn sitt í sögubækurnar í gær er hann gekk í raðir Hellas Verona á Ítalíu, en hann verður fyrsti Færeyingurinn til að spila í Seríu A.
Edmundsson er 25 ára gamall og kemur til Verona frá Wisla Plock fyrir 3,5 milljónir evra.
Þar með skrifaði hann aftur nafn sitt í sögubækurnar en þetta gerir hann að dýrasta leikmanni í sögu Færeyja.
Hann skrifaði undir þriggja og hálfs árs samning við Verona eða út tímabilið 2029.
Miðvörðurinn ólst upp hjá B68 í Færeyjum en fór ungur að árum til Sunderland á Englandi þar sem hann lék með unglingaliðunum. Árið 2020 samdi hann við Aguilas á Spáni áður en hann hélt til Póllands þar sem hann spilaði með Chojniczanska og síðar Wisla Plock.
Edmundsson á 19 A-landsleiki með Færeyjum og fjölda leikja með yngri landsliðunum.
Athugasemdir

