Louis Thomas Buffon, sonur ítölsku goðsagnarinnar Gianluigi Buffon, hefur verið lánaður frá A-deildarliðinu Pisa til Pontedera í C-deildinni á Ítalíu.
Louis er 18 ára gamall sóknarmaður sem fór í gegnum akademíuna hjá Juventus áður en hann fór til Pisa árið 2023.
Hann þreytti frumraun sína með Pisa í B-deildinni í mars á síðasta ári en tveimur mánuðum síðar komst Pisa upp í efstu deild undir stjórn Filippo Inzaghi.
Í október á síðasta ári lék hann fyrsta leik sinn í A-deildinni og fetaði þar í fótspor föður síns og bætti met hans, en Gianluigi þreytti frumraun sína í A-deildinni þegar hann var 17 ára og 295 daga gamall á meðan Louis hafði betur með um tveimur vikum.
Tækifærin hafa verið fá með Pisa og taldi félagið best fyrir alla aðaila að senda hann til C-deildarliðs Pontedera á láni út þetta tímabil.
Louis er talinn gríðarlegt efni. Hann er fæddur á Ítalíu, en er með tvöfalt vegabréf í gegnum móður sína sem kemur frá Tékklandi. Hann hefur leikið glimrandi vel með yngri landsliðum Tékklands og skoraði meðal annars tvær þrennur með U19 ára landsliðinu í nóvember.
Pontedera er í botnsæti B-riðils með aðeins 15 stig, níu stigum frá öruggu sæti.
Athugasemdir



