Gluggadagurinn er í dag en glugganum verður lokað í ensku úrvalsdeildinni klukkan 19 - Fótbolti.net stendur vaktina
banner
   þri 03. febrúar 2026 06:00
Brynjar Ingi Erluson
Wilder fær leikmann frá Sunderland (Staðfest)
Mynd: Sheffield United
Chris Wilder og félagar í Sheffield United hafa fengið norska varnarmanninn Leo Hjelde á láni frá Sunderland út þessa leiktíð.

Sam McCallum meiddist í leik með Sheffield í jafnteflinu gegn Millwall um helgina og hefur félagið brugðist hratt við með því að sækja Hjelde frá Sunderland.

Hjelde er 24 ára gamall sem getur spilað bæði sem miðvörður og sem vinstri bakvörður.

Hann er fæddur í Nottingham og er sonur Jan Olav sem lék árum áður með Nottingham Forest.

Varnarmaðurinn hóf atvinnumannaferil sinn hjá Celtic í Skotlandi og skrifaði undir atvinnumannsamning þar aðeins 15 ára gamall, en hann hefur einnig leikið með Leeds, Rotherham, Ross County og Kilmarnock.

Á síðustu leiktíð spilaði hann 19 leiki er Sunderland vann sér sæti í ensku úrvalsdeildinni. Hjelde hefur ekkert komið við sögu hjá Sunderland á þessari leiktíð, en hann mun nú hjálpa Sheffield United að halda sæti sínu í B-deildinni.


Stöðutaflan England Championship - karlar
  L U J T ms: mf: mun Stig
1 Coventry 30 17 7 6 63 35 +28 58
2 Middlesbrough 30 17 7 6 47 29 +18 58
3 Hull City 29 16 5 8 48 40 +8 53
4 Ipswich Town 29 14 9 6 49 28 +21 51
5 Millwall 30 14 8 8 37 36 +1 50
6 Wrexham 30 12 11 7 44 37 +7 47
7 Derby County 30 12 9 9 44 37 +7 45
8 Preston NE 30 11 11 8 37 34 +3 44
9 Bristol City 30 12 7 11 40 36 +4 43
10 Watford 29 11 10 8 39 35 +4 43
11 QPR 30 12 7 11 42 43 -1 43
12 Stoke City 30 12 6 12 34 28 +6 42
13 Birmingham 30 11 9 10 41 38 +3 42
14 Southampton 30 10 10 10 43 41 +2 40
15 Swansea 30 11 6 13 34 37 -3 39
16 Leicester 30 10 8 12 40 45 -5 38
17 Sheffield Utd 29 11 3 15 40 42 -2 36
18 Charlton Athletic 29 9 8 12 29 38 -9 35
19 Norwich 30 9 6 15 37 42 -5 33
20 Portsmouth 28 8 9 11 27 37 -10 33
21 West Brom 30 9 5 16 32 47 -15 32
22 Blackburn 29 7 8 14 26 38 -12 29
23 Oxford United 29 6 9 14 27 38 -11 27
24 Sheff Wed 29 1 8 20 18 57 -39 -7
Athugasemdir
banner
banner