Aron Jóhannsson virðist hafa lagt skóna á hilluna eftir öflugan feril. Þetta kemur fram í hlaðvarpsþættinum Kjaftæðið.
Aron er samningsbundinn Val út komandi tímabil en var í lok nóvember leystur undan starfsskyldum hjá félaginu og hefur því ekki æft með liðinu í vetur.
Aron er samningsbundinn Val út komandi tímabil en var í lok nóvember leystur undan starfsskyldum hjá félaginu og hefur því ekki æft með liðinu í vetur.
„Ég ræddi við Aron Jó um hans viðskilnað við Val. Hann sagði að ef stjórnarmenn Vals væru með eitthvað vit fyrir því hvað þeir væru að gera þá hefði Hemmi (Hermann Hreiðarsson, þjálfari) fengið þau skilaboð (frá stjórninni) að Aron myndi ekkert spila. Þá væri Aron hættur sjálfur, hefði sjálfur beðið um riftun og þá væri Valur ekki að borga apríl-nóvember. Aron er hættur í fótbolta, það er staðfest. Það er sorglegt og hann er ekki að enda þetta á sínum forsendum," segir Baldvin Már Borgarsson í þættinum. Samningur Arons við Val rennur út eftir tímabilið í Bestu deildinni.
„Hann ætlar ekki að láta „búllía" sig út úr þessum samningi hjá Val, ætlar að láta þá borga hann upp. Hann er farinn að vinna í sjónvarpinu og í umboðsmennsku með Agga og Bjarka (CAA Stellar)," bætti Baldvin við.
Það sást til Arons á Spáni þar sem hann aðstoðaði Kristal Mána Ingason þegar hann var að ganga í raðir Brann.
Aron var staddur á Marbella í golfferð og tók á móti Kristalli þegar hann kom til móts við Brann sem var þar í æfingaferð.
„Aron á eftir að verða góður í því. Aron er í raun og veru launahæsti golfari landsins í dag," segir Viktor Unnar Illugason á léttu nótunum í þættinum.
Aron er 35 ára sóknarmaður sem lék með Fjölni, AGF, AZ Alkmaar, Werder Bremen, Hammarby, Lech Poznan og Val á sínum ferli.
Hann lék tíu leiki með íslenska U21 landsliðinu en ákvað svo að velja það að spila með Bandaríkjunum, hvar hann er fæddur, spilaði 19 landsleiki, skoraði fjögur mörk og fór á HM í Brasilíu 2014 með bandaríska liðinu.
Hann vann dönsku fyrstu deildina með AGF og hollenska bikarinn með AZ. Samkvæmt Wikipedia skoraði hann 104 mörk sem atvinnumaður erlendis. Eftir komuna til Vals spilaði hann aftar á vellinum og skoraði 20 mörk á fjórum tímabilum á Hlíðarenda.
Athugasemdir


