Fotbolti.net
03.05.06 - 13:15
Hafliði Breiðfjörð

Jónas Grani Garðarsson í Fram (Staðfest)

Jónas Grani í leik með FH í fyrrasumar.

Jónas Grani í leik með FH í fyrrasumar.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Jónas Grani Garðarsson er genginn í raðir Fram og spilar með þeim í 1. deildinni á næstu leiktíð. Jónas Grani kemur til liðsins frá FH en mikil umræða hefur verið um hans mál í fjölmiðlum upp á síðkastið.
Ekki er um nein leikmannaskipti að ræða heldur kaupir Fram Jónas Grana af FH samkvæmt heimildum Fótbolta.net. Upphaflega hafði staðið til að félögin skiptu á Jónasi og Andra Fannari Ottóssyni en ekkert varð úr því þar sem Andri vildi ekki fara til FH.

Mál Jónasar var mikið í umræðu í fjölmiðlum þar sem FH gaf grænt ljós á að hann færi frá félaginu en vildi ekki heimila honum að fara til liðs í Landsbankadeildinni. Því varð úr að hann gengur nú í raðir Fram og leikur með þeim næsta sumar.

Fréttatilkynningu Knattspyrnudeildar FH má lesa hér.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.