Fotbolti.net
03.05.07 - 15:50
Magnús Már Einarsson

Hermann Albertsson í Víking (Staðfest)

Hermann Albertsson í Víking (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Hermann Albertsson hefur gengið til liðs við Víking Reykjavík frá FH og hefur hann þegar fengið leikheimild með liðinu. Félögin höfðu áður komist að samkomulagi um kaupverð á leikmanninum og nú hafa kaupin gengið í gegn.
Hjá Víkingum mun hann væntanlega leysa stöðu Harðar Bjarnasonar sem hefur leikið í vinstri bakvarðarstöðunni undanfarin ár en Hörður verður frá allt tímabilið eftir að hafa slitið krossband í hné.

Hermann lék níu leiki í Landsbankadeildinni síðastliðið sumar og skoraði hann í þeim eitt mark en það kom gegn ÍBV í sjöttu umferð.

Hermann sem er 23 ára gamall er uppalinn á Dalvík. Hann á alls 22 leiki að baki í efstu deild og hefur hann skorað í þeim þrjú mörk en hann gekk til liðs við FH árið 2003. Hann lék ekkert sumarið 2004 eftir að hafa slitið krossbönd í deildabikarleik í mars.

Áður en hann gekk til FH hafði hann skorað þrjú mörk í fimmtán leikjum með Leiftri/Dalvík í fyrstu deildinni árið 2002.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.