03.05.11 - 15:25
Magnús Már Einarsson
Michael Abnett í BÍ/Bolungarvík (Staðfest)
Ameobi kemur líklega ekki

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
BÍ/Bolungarvík hefur samið við enska leikmanninn Michael Abnett sem hefur verið á reynslu undanfarna daga.
Abnett, sem er 21 árs, getur leikið á báðum köntunum sem og í bakverði. Hann ólst upp hjá Crystal Palace og var þar áður en hann fór til utandeildarliðsins Lewes á síðasta ári.
Nicky Deverdics hefur einnig verið til reynslu hjá BÍ/Bolunarvík en ekki er ljóst hvort hann verði með Vestfirðingum í sumar.
Í gær kom einnig skoskur miðjumaður til BÍ/Bolungarvíkur á reynslu en hins vegar er mjög ólíklegt að Tomi Ameobi komi til félagsins eins og stóð til.
Ameobi, sem er bróðir Shola Ameobi framherja Newcastle, átti að koma á reynslu í vikunni en nú er útlit fyrir að hann komi ekki til Íslands.