03.05.11 - 22:22
Elvar Geir Magnússon
Umfjöllun: Víkingar með bitið sem Þórsara skorti

Víkingar voru ansi glaðir eftir leik.

Mynd: Fótbolti.net - Kristján Orri Jóhannsson

Helgi Sigurðsson kom Víkingi á bragðið.

Mjölnismenn í rútunni á leið í leikinn.

Mynd: Twitter

Víkingur 2 - 0 Þór
1-0 Helgi Sigurðsson (29\')
2-0 Björgólfur Takefusa (84\')
1-0 Helgi Sigurðsson (29\')
2-0 Björgólfur Takefusa (84\')
Reynslurefirnir Helgi Sigurðsson og Björgólfur Takefusa sáu um að klára Þórsara í nýliðaslag Pepsi-deildarinnar í kvöld. Gestirnir að norðan réðu lögum og lofum fyrstu tuttugu mínúturnar en þá náðu Víkingar að binda sinn leik betur saman.
Það vantaði bit í Þórsliðið. Oft á tíðum átti liðið góða samspilskafla og menn voru að leggja sig fram. Það sem Víkingar höfðu fram yfir voru markanef og reynsla efstu manna.
Helgi Sigurðsson náði góðum snúningi eftir tæpan hálftíma og braut ísinn. Þórsarar reyndu að jafna en gekk erfiðlega að skapa sér almennileg færi. Þeir voru þó óheppnir að ná ekki að skora þegar Sigurður Marinó Kristjánsson átti skot í innanverða stöngina.
Jafnræði var með liðunum og fótboltinn sem í boði var ekki mjög fallegur. Varamaðurinn Björgólfur Takefusa gerði út um leikinn með skallamarki á 84. mínútu eftir sendingu frá Finnanum Denis Abdulahi.
Mikilvægur sigur hjá Víkingum en það voru þeirra reynslumestu menn sem stóðu upp úr í kvöld. Helgi var liðinu gríðarlega mikilvægur en maður leiksins er miðvörðurinn Mark Rutgers sem átti frábæran leik í hjarta varnarinnar.
Þórsarar voru sprækir og baráttuglaðir en herslumuninn vantaði. Hann þurfa þeir að finna fyrir laugardaginn þegar þeir heimsækja Fram.
Víkingur: Magnús Þormar (m), Hörður Sigurjón Bjarnason, Mark Richard Rutgers, Halldór Smári Sigurðsson, Egill Atlason, Pétur Georg Markan (83 Gunnar Steindórsson), Denis Abdulahi, Helgi Sigurðsson, Walter Hjaltested, Baldur Ingimar Aðalsteinsson (56 Kjartan Dige Baldursson), Sigurður Egill Lárusson (69 Björgólfur Takefusa).
Þór: Srdjan Rajkovic (m), Gísli Páll Helgason, Gunnar Már Guðmundsson, Atli Jens Albertsson, Atli Sigurjónsson, Þorsteinn Ingason, Jóhann Helgi Hannesson, Sveinn Elías Jónsson, Ingi Freyr Hilmarsson (65 Ármann Pétur Ævarsson), Janez Vrenko, Sigurður Marinó Kristjánsson (65 Aleksandar Linta).
Aðstæður: Völlurinn í döpru standi, vel vorlegur og gulur. Hlýtt og logn.
Dómari: Valgeir Valgeirsson, ágætur.
Maður leiksins: Mark Rutgers (Víkingur)
Leik lokið! Víkingar unnu nýliðaslaginn 2-0. Viðtöl eru væntanleg hér á Fótbolta.net.
90 mín Uppbótartími í gangi.
86 mín Jóhann Helgi Hannesson setti boltann í tréverkið á marki Víkinga.
84 mín MARK!!! Víkingar að tryggja sér sigurinn. Björgólfur Takefusa skorar með skalla af um það bil 2 sentimetra færi. Hörður Sigurjón Bjarnason gaf boltann á hinn finnska Denis Abdulahi sem átti fasta fyrirgjöf sem varamaðurinn Björgólfur skallaði inn.
83 mín Tíminn að renna út hjá Þórsurum. Þeim hefur skort ákveðið bit á síðasta þriðjungnum í þessum leik.
82 mín Skipting hjá Víkingum: Gunnar Helgi Steindórsson inn fyrir Pétur Georg Markan.
80 mín Björgólfur Takefusa nær skalla á markið en Rajkovic ver.
73 mín Sveinn Elías fékk hörkufæri til að jafna metin fyrir Þór en skot hans slappt og hátt yfir.
69 mín Björgólfur Takefusa kominn inn sem varamaður hjá Víkingum fyrir Sigurð Egil Lárusson.
65 mín Atli Sigurjónsson Þórsari fær gult spjald. Alltof seinn í tæklingu og því fékk Walter Hjaltested að finna fyrir. Þeir félagar skarta einum skemmtilegustu hárgreiðslum deildarinnar (staðfest).
63 mín Tvöföld skipting hjá Þór. Af velli fara Ingi Freyr og Sigurður Marinó. Inn koma Aleksandar Linta og Ármann Pétur Ævarsson. Mjölnismenn hljóta að gleðjast yfir þessu enda hafa þeir verið að syngja Linta til heiðurs.
61 mín Þó Þórsurum gangi vel að halda boltanum innan liðsins og ná oft upp flottu spili gengur ekki eins vel hjá þeim að skapa sér færi.
56 mín Baldur fer af velli, sárþjáður í kjaftinum. Kjartan Dige Baldursson inn fyrir hann.
55 mín Hörður Bjarnason Víkingur fær fyrsta gula spjaldið í leiknum.
53 mín Þórsarar hársbreidd frá því að jafna! Sigurður Marinó Kristjánsson átti skot sem fór í innanverða stöngina áður en Magnús Þormar náði að handsama knöttinn.
51 mín Síðari hálfleikurinn fer rólega af stað.
46 mín Seinni hálfleikur er hafinn. Þrátt fyrir tannbrot þá er Baldur Aðalsteinsson mættur aftur út á völlinn. Virðist samt sem áður kvalinn.
20:12 Leiðrétting. Baldur Aðalsteinsson þarf tannlækni!
20:10 Vallarþulurinn Björn Malmquist var að auglýsa eftir tannlækni í stúkunni. Egill Atlason fékk eitthvað högg áðan og þarf á tannlækni að halda.
45 mín 2 Það hefur verið flautað til hálfleiks hér í Víkinni. 1-0 fyrir heimamenn. Þórsarar byrjuðu leikinn mun betur og áttu margar hættulegar sóknir án þess að ná að skapa sér teljandi færi. Víkingar náðu svo að vinna sig inn í leikinn og hákarlinn Helgi Sigurðsson sýndi hvers hann er megnugur og var með markanefið á sínum stað.
Twitter: Gísli Torfi
Debut leikur Helga Sig 15.09.1990 á móti ÞÓR :) ennþá að 21 ári síðar
Twitter: Einar Áskelsson
Gameplanið hjá Þór er að skora sigurmark í uppbótartíma. Virkar alltaf á Víkinga! :) #þorsaltarvikinga
38 mín Þór fékk tvö mjög góð færi með skömmu millibili! Í fyrra skiptið náði Magnús Þormar að verja en í það síðara fór boltinn framhjá.
32 mín Víkingar eru heldur betur búnir að finna gírinn eftir mjög dapra byrjun. Þórsarar náðu ekki að nýta sér yfirburðina í byrjun og eiga undir högg að sækja núna.
29 mín MARK!!! Víkingar komast yfir og það er reynsluboltinn Helgi Sigurðsson sem braut ísinn. Eftir klafs í teignum vann Helgi boltann og skoraði. Vel gert hjá Helga!
26 mín Mikil gleði í Víkinni enda kom loksins fyrsta skotið á markið. Halldór Smári með skot af löngu færi sem Rajkovic átti ekki í vandræðum með.
22 mín Komið rautt og tvö mörk í Kópavoginum... en hér í Víkinni erum við að bíða eftir fyrsta markskotinu.
15 mín Gísli Páll Helgason, bakvörður Þórs, hefur fengið að sýna það nokkrum sinnum í upphafi hve langt hann getur kastað úr innköstum. Enn höfum við þó ekki fengið neitt skot á mark.
11 mín Gestirnir frá Akureyri byrja betur og leikurinn fer bara fram á vallarhelmingi Víkings. Heimamenn eru ekkert að ná að halda boltanum. En allt getur gerst... skyndisóknir Víkinga gætu orðið baneitraðar með sína þriggja manna sóknarlínu.
5 mín Þórsarar hafa átt nokkrar skemmtilegar sóknir hér í upphafi leiksins. Eru að ná fínu spili en ekkert færi komið enn.
19:16 Flautað hefur verið til leiks. ,,Völlurinn er eins og tún,\" segir Valtýr Björn Valtýsson sem situr mér við hlið.
19:09 Styttist í leik. Mjölnismenn búnir að vera duglegir að taka lagið í stúkunni á meðan rólegra er yfir stuðningsmönnum Víkings. Söngvatnið á leiðinni hefur lagst vel í Mjölnismennina sem eiga vafalítið eftir að lita sumarið skemmtilega.
19:00 Smá mistök gerð í byrjunarliði Þórs hér fyrir neðan. Ég varð þess víst valdandi að nokkrir fyrir norðan fengu hjartaáfall. Atli Sigurjónsson er að sjálfsögðu í byrjunarliðinu. Þórsarar ætla ekki að spila tíu í kvöld. Þetta hefur verið leiðrétt. Atli er arkitektinn að sóknum Þórsaraliðsins.
18:57 ,,Ég er nú meira fyrir rappútgáfuna,\" segir Snorri Sturluson þegar stuðningslag Þórsara, Deyja fyrir klúbbinn, er spilað í Eurovision útgáfunni í blaðamannastúkunni. Með því að smella hér má nálgast það fyrir áhugasama.
Twitter: Guðni Þór Magnússon
Þórsarar taka nýliðaslaginn nokkuð auðveldlega, 1-3! #deyjafyrirklubbinn #rajkoílandsliðið
18:54 Dómari í kvöld er Skagamaðurinn rauðhærði Valgeir Valgeirsson.
18:49 Þessi lið fóru bæði upp úr 1. deildinni í fyrra. Víkingar unnu deildina með 48 stig en Þórsarar enduðu í öðru sæti með 43 stig, jafnmörg og Leiknir en með betri markatölu.
18:46 Við minnum fólk á sem skrifar færslur um leikinn á Twitter að nota hashtagið #fotbolti til að flokka færslurnar. Valdar færslur verða svo birtar hér í textalýsingunni.
18:44 Sólin skín á Víkingsvellinum svo blaðamenn þurfa að vera með derhúfur til að sjá almennilega á völlinn. Víkingsvöllurinn lítur ekkert of vel út en er þó talsvert skárri en þegar ég fór að skoða hann fyrir um viku síðan.
Byrjunarlið Víkings: Magnús Þormar (m), Hörður Sigurjón Bjarnason, Mark Rutgers, Halldór Smári Sigurðsson, Egill Atlason, Pétur Georg Markan, Denis Abdulahi, Helgi Sigurðsson (f), Walter Hjaltested, Baldur Aðalsteinsson, Sigurður Egill Lárusson.
Varamenn Víkings: Ingólfur Þórarinsson, Kjartan Dige Baldursson, Tómas Guðmundsson, Aron Elís Þrándarson, Gunnar Helgi Steindórsson, Björgólfur Takefusa, Skúli Sigurðsson (m).
Byrjunarlið Þórs: Srdjan Rajkovic (m), Gísli Páll Helgason, Gunnar Már Guðmundsson, Atli Jens Albertsson, Atli Sigurjónsson, Þorsteinn Ingason (f), Jóhann Helgi Hannesson, Sveinn Elías Jónsson, Ingi Freyr Hilmarsson, Janes Vrenko, Sigurður Marinó Kristjánsson.
Varamenn Þórs: Aleksandar Linta, Ármann Pétur Ævarsson, Ottó Hólm Reynisson, Björn Hákon Sveinsson (m), Kristján Steinn Magnússon, Baldvin Ólafsson, Pétur Heiðar Kristjánsson.
18:37 Góða kvöldið! Það er sumarveður í Víkinni þar sem nýliðaslagur Víkinga og Þórs fer fram í kvöld klukkan 19:15. Byrjunarliðin hafa borist og eru væntanleg hingað inn á næstu mínútum.