03.05.11 - 19:24
Ívan Guðjón Baldursson
Ken Bates nýr eigandi Leeds (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Enska knattspyrnufélagið Leeds United hefur staðfest að nýr eigandi félagsins er Ken Bates, núverandi stjórnarformaður félagsins, en hann er búinn að kaupa FSF Limited sem átti stóran part í Leeds.
Mikið hefur verið fjallað um fjármál Leeds í blöðum á Englandi og með þessari aðgerð vonast félagið til að binda enda á allan vafa varðandi fjármál og eignahald félagsins.

,,Það hafa verið miklar getgátur í fjölmiðlum um eignahald Leeds United og hvort það hafi verið farið eftir fjármálareglum enska knattspyrnusambandsins,\" stendur í yfirlýsingu frá félaginu.
,,Það hefur aldrei verið neitt raunverulegt vandamál en núna vonum við að allt sé á tæru milli okkar og knattspyrnusambandsins.
,,Það er staðfest að Ken Bates á meirihlutann í Leeds United. Outro Limited, fyrirtæki í eigu Bates, er búið að kaupa FSF Limited fyrir óuppgefna fjárhæð.\"
Leeds leikur í Championship deildinni á Englandi og gekk vel fyrri hluta leiktíðar. Á tímapunkti virtist liðið vera öruggt með umspilssæti en nú er aðeins einn leikur eftir og sú von virðist vera endanlega úti.

Heimild: Sky Sports