Fotbolti.net
03.05.23 - 09:48
Elvar Geir Magnússon

Stóri Sam orðinn stjóri Leeds (Staðfest) - „Tók mig tvær sekúndur að segja já“

Stóri Sam Allardyce hefur verið ráðinn stjóri Leeds út tímabilið.

Stóri Sam Allardyce hefur verið ráðinn stjóri Leeds út tímabilið.

Canon

Mynd: Getty Images

Stóri Sam Allardyce mætti á æfingasvæði Leeds United í morgun og hefur nú verið staðfestur sem nýr stjóri liðsins. Honum er ætlað að bjarga Leeds frá falli á lokasprettinum.

Leeds er markatölunni frá því að vera í fallsæti en liðið á eftir að leika gegn Manchester City, Newcastle, West Ham og Tottenham.
Javi Gracia hefur verið rekinn en hann tók við liðinu í febrúar.

„Það tók mig tvær sekúndur að segja já við þessu starfi," segir hinn 68 ára gamli Allardyce en hans fyrsti leikur verður gegn City á laugardag.

„Mér brá þegar ég fékk símtalið, ég bjóst ekki við þessu á þessum tímapunkti. Ég hélt að það myndi ekki losna neitt starf. Það hefði verið betra að fá meiri tíma en ég hef fjóra leiki til að halda þessu stórkostlega félagi í ensku úrvalsdeildinni."

Victor Orta sem var yfirmaður fótboltamála yfirgaf Leeds í gær en hann var ekki sammála stjórn Leeds varðandi stöðu Gracia. Það hefur blásið bak við tjöldin hjá Leeds en Gracia tók við af Jesse Marsch sem náði ekki einu ári í starfi eftir að Marcelo Bielsa var rekinn.

Leeds hefur farið í gegnum fimm leiki án sigurs, þar af fjóra tapleiki, síðan liðið vann 2-1 gegn Nottingham Forest þann 4. apríl.

Það má segja að hugmyndafræði Allardyce sé algjörlega andstæðan við Bielsea. Allardyce hefur meðal annars stýrt Bolton, West Ham og Everton en samtals hefur hann stýrt yfir 500 úrvalsdeildarleikjum á 29 ára ferli.

Það tók hann tvær sekúndur að segja já.

Það tók hann tvær sekúndur að segja já.

Canon

Mynd: Getty Images

Premier league - karlar

#LiðLmunStig
1Arsenal10+1027
2Brighton10+1922
3Man City10+821
4Liverpool10+418
5Chelsea10+316
6Everton10+216
7Bournemouth10+215
8Brentford10+514
9Leeds10+214
10Aston Villa10-313
11Tottenham10-112
12Newcastle10-312
13Hull City10011
14Ipswich Town10-511
15Fulham10-210
16Nott. Forest10-49
17Coventry10-99
18Man Utd10-58
19Sunderland10-98
20Crystal Palace10-147
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.