Fotbolti.net
03.06.07 - 19:51
Magnús Már Einarsson

Vanden Borre til Fiorentina (Staðfest)

Vanden Borre til Fiorentina (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Ítalska félagið Fiorentina hefur keypt hægri bakvörðinn Anthony Vanden Borre frá Anderlecht en kaupverðið hefur ekki verið gefið upp.
Þessi nítján ára gamli varnarmaður sem spilaði sex leiki í Meistaradeildinni með Anderlecht á nýliðinni leiktíð, hefur gert fimm ára samning við Fiorentina.

Ítalska félagið byrjaði með fimmtán stig í mínus í Serie A á nýliðinni leiktíð náði þrátt fyrir það Evrópusæti.

Vanden Borre er ekki eini leikmaðurinn sem Fiorentina hefur klófest því að varnarmaðurinn Ondrej Mazuch hefur komið frá 1. FC Brno og miðjumaðurinn Jan Hable frá RH Hradec Králové. Báðir eru þeir átján ára og hafa þeir gert fimm ára samning við Fiorentina.

Heimild: Heimasíða UEFA

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.