03.06.11 - 09:54
Hafliði Breiðfjörð
Brad Friedel fer til Tottenham (Staðfest)

Brad Freidel á Laugardalsvelli fyrir leik gegn FH í Evrópukeppninni.

Mynd: Fótbolti.net - Hörður Snævar Jónsson

Bandaríski markvörðurinn Brad Friedel hefur samþykkt að ganga til liðs við Tottenham.
Samningur þessa fertuga markmanns rennur út í lok þessa mánaðar en hann hefur nú gert tveggja ára samning við Tottenham.
,,Það er gott að hafa þrjá svona reynda markmenn hjá félaginu, Heurelho Gomes, Carlo Cudicini og núna Brad,\" sagði Harry Redknapp stjóri Tottenham.
,,Það þýðir að við höfum samkeppni um stöður, sérstaklega miðað við fjölda leikja sem við munum vonandi fá á næsta ári.\"
Friedel mun ekki kosta neitt kaupverð þar sem samningur hans var að renna út en hann kom fyrst til Englands þegar hann fór til Liverpool frá Columbus Crew í desember árið 1997. Hann spilaði þar 30 leiki en fór svo til Blackburn þar sem hann spilaði 356 leiki á næstum átta árum. Hann fór svo til Aston Villa árið 2008.

Heimild: BBC