Fotbolti.net
03.06.11 - 18:41
Magnús Már Einarsson

Billy Jones til WBA (Staðfest)

Billy Jones til WBA (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

West Bromwich Albion hefur samið við varnarmanninn Billy Jones en hann kemur frítt til félagsins frá Preston.

Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir þrigga ára samning hjá Roy Hodgson og félögum.
Jones var einn besti leikmaður á Preston á síðasta tímabili en hann gat þó ekki hjálpað liðinu að forðast fall úr Championship deildinni.

Nokkur félög sýndu honum áhuga eftir tímabilið en WBA hefur núna gengið frá samningum.

Jones er annar leikmaðurinn sem WBA fær í sumar en félagið hefur einnig fengið Gareth McAuley frá Ipswich.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.