Serbneski framherjinn Dusan Vlahovic mun yfirgefa Juventus í sumar eftir rúmlega fjögurra ára dvöl hjá félaginu. Ítalski blaðamaðurinn Gianluca Di Marzio greinir frá tíðindunum.
Samningur Serbans við félagið rennur út í lok júní og náði leikmaðurinn og félagið ekki saman um kaup og kjör á nýjum samningi.
Samningur Serbans við félagið rennur út í lok júní og náði leikmaðurinn og félagið ekki saman um kaup og kjör á nýjum samningi.
Vlahovic, sem er 26 ára, hefur leikið alls 168 leiki fyrir Juventus í öllum keppnum og skorað 68 mörk.
Hann hefur verið orðaður við stór félög á borð við Bayern Munchen, AC Milan og Chelsea.
.@juventusfc-Vlahovic: non è stata trovata un'intesa economica. Non ci saranno altri incontri, l'attaccante e il club bianconero si separeranno al termine della stagione
— Gianluca Di Marzio (@DiMarzio) June 3, 2026




