03.07.06 - 17:37
Magnús Már Einarsson
Jason Roberts til Blackburn (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Blackburn hefur keypt Jason Roberts frá Wigan og hefur hann gert fjögurra ára samning við félagið. Roberts sem er 28 ára gamall er annar framherjinn sem Blackburn fær í dag en í morgun kom Francis Jeffers til liðsins.
Roberts var markahæstur hjá Wigan á síðustu leiktíð með 14 mörk en hann segist hafa hafnað nýju samningstilboði við liðið í maí.
Þessi sterki leikmaður sem kom til Wigan á 1,4 milljónir punda frá WBA árið 2004 var einnig undir smásjá tyrkneska liðsins Besiktas sem bauð í hann en Blackburn hafði betur og hefur nú krækt í kappann.