03.07.07 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson
Liverpool fær annan ungan Búlgara (Staðfest)


Mynd: Getty Images


Mynd: Getty Images
Liverpool hafa fest kaup á Mihail Alexandrov 18 ára leikmanni, hann kemur frá CSKA Sofia. Alexandrov greindi frá því að hann hefði náð samkomulagi við Liverpool.
,,Allt er klárt, ég hef staðist læknisskoðun, samþykkt samninginn, það eina sem er eftir er að skrifa undir samninginn. Í mínum bestu draumum hélt ég að ég myndi aldrei fara til félags af þessari stærðargráðu," sagði Alexandrov.
Alexandrov er annar Búlgarinn sem kemur til Liverpool í sumar en Nikolai Mihailoc sem er markmaður kom til félagsins í síðustu viku.
Alexandrov er annar Búlgarinn sem kemur til Liverpool í sumar en Nikolai Mihailoc sem er markmaður kom til félagsins í síðustu viku.
Heimild: Sky
