Fotbolti.net
03.07.09 - 13:01
Magnús Már Einarsson

Manchester United lánar Rodrigo Possebon til Braga (Staðfest)

Manchester United lánar Rodrigo Possebon til Braga (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Sporting Braga frá Portúgal hefur náð samningum við Manchester United um að fá Rodrigo Possebon á láni á næstu leiktíð.
Þessi brasilíski miðjumaður kom til United frá Internacional í janúar árið 2008.

Possebon, sem er tvítugur, lék sinn fyrsta leik með aðalliði United gegn Newcastle í ágúst í fyrra.

Possebon var alls þrisvar í byrjunarliðinu á síðustu leiktíð og kom fimm sinnum inn á sem varamaður en hann mun nú fara til Braga til að öðlast meiri leikreynslu.

Heimild: Sky

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.