Fotbolti.net
03.07.09 - 15:08
Magnús Már Einarsson

Greg Halford til Wolves (Staðfest)

Greg Halford til Wolves (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Wolves hefur fengið varnarmanninn Greg Halford til liðs við sig frá Sunderland.
Þessi 24 ára gamli leikmaður hefur skrifað undir þriggja ára samning með möguleika á framlengingu.

Halford hefur farið víða á ferlinum en á síðustu leiktíð var hann í láni hjá Sheffield United Þar á undan lék hann með Colchester, Reading og Charlton.

Wolves er að styrkja leikmannahóp sinn fyrir komandi átök í ensku úrvalsdeildinni en fyrr í vikunni komu Kevin Doyle og Andrew Surman til félagsins.

Heimild: BBC

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.