Fotbolti.net
03.07.09 - 17:14
Hafliði Breiðfjörð

Atli Eðvaldsson tekur við Val (Staðfest)

Atli Eðvaldsson er nýr þjálfari Vals.

Atli Eðvaldsson er nýr þjálfari Vals.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Valur sendi frá sér yfirlýsingu rétt í þessu þar sem það var staðfest að Atli Eðvaldsson verður nýr þjálfari liðsins en Fótbolti.net greindi fyrstur miðla frá þessu fyrr í dag.

Atli er staddur í Þýskalandi þessa stundina en kemur hingað til lands á sunnudag og stýrir fyrstu æfingu liðsins sama dag. Hann er því klár í slaginn í leikinn gegn KA í VISA-bikarnum á mánudaginn.
Hann semur við Val um að taka við liðinu út þetta tímabil samkvæmt yfirlýsingu félagsins.

Atli tekur við starfinu af Willum Þór Þórssyni sem var látinn fara í fyrradag. Þorgrímur Þráinsson sem var aðstoðarmaður Willums stýrði liðinu í 0-5 tapinu gegn FH í gærkvöld.

Valur hafði áður reynt að fá Guðmund Benediktsson leikmann KR til að taka við liðinu en KR sleit þeim viðræðum í gærkvöld svo ljóst varð að ekkert yrði úr því.


Atli Eðvaldsson hóf feril sinn sem knattspyrnumaður hjá Val áður en hann hélt á vit ævintýra úti í heimi. Hann kom svo til KR eftir atvinnumennskuna þar sem hann þjálfaði síðar og var einnig síðar landsliðsþjálfari Íslands.

Hann þjálfaði síðast Þróttara sem hann tók við í byrjun júlí 2005 en hætti svo með liðið í september árið eftir.

Hann hefur þjálfað HK, Fylki, ÍBV og KR og auk þess þjálfað U-21 árs landslið Íslands og A-landslið Íslands. Hann gerði KR að Íslands- og bikarmeisturum árið 1999.

Yfirlýsing Vals
Knattspyrnufélagið Valur hefur komist að munnlegu samkomulagi við Atla Eðvaldsson um að hann taki að sér þjálfun meistaraflokks karla í knattspyrnu. Samkomulagi gildir út yfirstandandi leiktíð. Atli er staddur í Þýskalandi en er væntanlegur til landsins á sunnudaginn og mun stýra liðinu á sinni fyrstu æfingu sama dag.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.