03.07.09 - 17:27
Davíð Örn Atlason
Daniel Sturridge til Chelsea (Staðfest)

Mynd: Getty Images

Mynd: Getty Images
Hinn ungi og efnilegi Daniel Sturridge er genginn í raðir Chelsea frá Manchester City. Sturridge skrifaði undir fjögurra ára samning við Lundúnarfélagið.
Þessar fréttir koma lítið á óvart þar sem Sturridge hafði verið orðaður við Chelsea og hann hafnaði nýlega samningstilboði Manchester City.
Sturridge var einnig orðaður við lið á borð við Aston Villa og West Ham, en hann endaði uppi hjá Chelsea.
Daniel Sturridge sem er frændi Dean Sturridge fyrrum leikmanns Derby spilaði sinn fyrsta leik fyrir City í febrúarmánuði árið 2007 gegn Reading.
Sturridge hefur skorað sex mörk í 32 leikjum fyrir City. Hann hefur oftast komið inná sem varamaður.

Heimild: Sky