Fotbolti.net
03.07.11 - 11:45
Magnús Már Einarsson

Luis Garcia til félags í Mexíkó (Staðfest)

Luis Garcia til félags í Mexíkó (Staðfest)
Canon

Mynd: Getty Images

Puebla frá Mexíkó hefur fengið spænska leikmanninn Luis Garcia til liðs við sig frá Panathinaikos í Grikklandi.
Þessi 33 ára gamli leikmaður skrifaði undir eins árs samning en samningur hans við Panathinaikos rann út á dögunum.

Garcia lék á sínum tíma með Liverpool sem og Barcelona og Atletico Madrid í heimalandi sínu.

Á síðasta tímabili skoraði Garcia tvö mörk í 24 leikjum með Panathinaikos.

Garcia hefur á ferli sínum leikið átján landsleiki með Spánverjum en hann spilaði meðal annars landsleik á Laugardalsvelli fyrir nokkrum árum.

Heimild: Goal

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.