03.07.11 - 19:40
Hafliði Breiðfjörð
Ólafur Brynjólfsson tekur við Breiðablik (Staðfest)

Kvennalið Breiðabliks er komið með nýjan þjálfara.

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Ólafur Brynjólfsson hefur verið ráðinn þjálfari kvennaliðs Breiðabliks en þetta staðfesti hann við Fótbolta.net í kvöld.
Hann mun stýra liðinu út þetta tímabil til að byrja með og ekki er búið að ganga frá hver verður honum til aðstoðar ennþá.

Lið Breiðabliks hefur verið þjálfaralaust síðustu daga eftir að Jóhannesi Karli Sigursteinssyni og Vöndu Sigurgeirsdóttur var sagt upp störfum á miðvikudaginn.
Ólafur Brynjólfsson var fyrir í starfi hjá Breiðablik því hann þjálfar einnig varalið félagsins, Augnablik, sem leikur í 3. deildinni og 2. flokk.
Hann sagðist halda áfram að þjálfa Augnablik en hættir með 2. flokkinn við þessa breytingu.
Hann fær skamman tíma til að koma sér inn í málin hjá Breiðablik því fyrsti leikur hans með liðið verður strax á þriðjudaginn gegn Aftureldingu.
Breiðablik er í 7. sæti Pepsi-deildar kvenna með sjö stig úr sjö leikjum.