Fotbolti.net
03.08.09 - 17:50
Hafliði Breiðfjörð

Indriði Sigurðsson til Viking (Staðfest)

Indriði Sigurðsson í landsleik með Íslandi.

Indriði Sigurðsson í landsleik með Íslandi.

Canon

Mynd: Fótbolti.net - Andri Janusson

Indriði Sigurðsson hefur verið seldur til Viking Stavanger í Noregi frá Lyn í sama landi en þetta staðfesti Magnús Agnar Magnússon umboðsmaður hans við Fótbolta.net í dag.
Kaupverðið er ekki gefið upp en Indriði mun gangast undir læknisskoðun hjá Viking í fyrramálið og hefur gengið frá öllum öðrum formsatriðum. Hann skrifar því undir þriggja og hálfs árs samning við félagið að læknisskoðuninni lokinni.

Indriði hittir fyrir hjá Viking þjálfarann Uwe Röstler en saman léku þeir áður þegar þeir voru hjá Lillesröm.

Fleiri lið höfðu sýnt Indriða áhuga og þeirra á meðal var Malmö í Svíþjóð en tilboði þess liðs var hafnað í síðustu viku. Um leið og áhugi Viking á Indriða fékkst staðfestur lagði hann allt annað til hliðar að sögn Magnúsar.

Indriði átti að spila með Lyn í kvöld en dró sig út úr hópnum á síðustu stundu þar sem hann og Viking vildu ekki taka áhættu á að hann myndi meiðast.

,,Indriði vildi komast í vel rekinn o9g metnaðarfullan klúbb sem á raunhæfa möguleika á að vera í titilbaráttu,\" sagði Magnús Agnar við Fótbolta.net um skiptin.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.