Fotbolti.net
03.08.11 - 06:00
Hörður Snævar Jónsson

David Jones til Wigan (Staðfest)

Jones í leik með Manchester Untied en þar hóf hann ferilinn.

Jones í leik með Manchester Untied en þar hóf hann ferilinn.

Canon

Mynd: Getty Images

Wigan hefur krækt í David Jones miðjumann frá Wolves á frjálsri sölu.
Jones var samningslaus í sumar og hefur æft með Wigan að undanförnu og staðið sig vel.

Þessi 26 ára gamli leikmaður heillaði forráðamenn Wigan og heillaðist hann af stjóra félagsins, Roberto Martinez..

,,Ég er glaður með að framtíð mín sé á hreinu,\" sagði Jones.

,,Roberto Martinez er frábær stjóri að vinna með og ég hef elskað hverja einustu mínútu af æfingum hérna. Mér líður eins og ég sé strax búinn að aðlagast.\"

Heimild: Sporting Life

Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.