Fotbolti.net
03.08.11 - 06:00
Elvar Geir Magnússon

Milan Jovanovic til Anderlecht (Staðfest)

Jovanovic að kljást við Bacary Sagna.

Jovanovic að kljást við Bacary Sagna.

Canon

Mynd: Getty Images

Ljóst er að Milan Jovanovic mun ganga til liðs við belgíska félagið Anderlecht frá Liverpool. Anderlecht tilkynnti þetta á heimasíðu sinni í gær en það eina sem getur komið í veg fyrir félagaskiptin er ef Jovanovic fellur á læknisskoðun á morgun.
Jovanovic kom til Liverpool síðasta sumar á frjálsri sölu frá Standard Liege. Hann fann sig engan veginn í ensku úrvalsdeildinni og var síðast í byrjunarliði Liverpool í janúar.

Anderlecht þarf ekki að borga fyrir serbneska framherjann sem er hátt skrifaður í Belgíu. hann sló í gegn í riðlakeppni Meistaradeildarinnar 2009.

Herman van Holsbeeck stjórnarformaður Anderlecht sagði að viðræðurnar við Liverpool hafi verið erfiðar en árangursríkar. Félagið væri komið með reynslumikinn og hæfileikaríkan leikmann.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.