Fotbolti.net
03.08.11 - 15:34
Magnús Már Einarsson

Kjartan Dige í Gróttu (Staðfest)

Kjartan Dige í Gróttu (Staðfest)
Canon

Mynd: Fótbolti.net - Tomasz Kolodziejski

Grótta úr fyrstu deild hefur fengið Kjartan Dige Baldursson til liðs við sig á láni frá Víkingi R.
Félagaskiptin gengu í gegn rétt áður en félagaskiptaglugginn lokaði á sunnudag en skiptin voru staðfest á heimasíðu KSÍ í dag.

Kjartan Dige er 21 árs gamall kantmaður en hann hefur leikið með meistaraflokki Víkings undanarin þrjú ár.

Í sumar hefur hann leikið átta leiki í Pepsi-deildinni og tvo leiki í Valitor-bikarnum með Víkingi.

Grótta er sem stendur í níunda sæti fyrstu deildarinnar en liðið er einungis stigi frá fallsæti.

Næsti leikur Gróttu er gegn BÍ/Bolungarvík á útivelli á laugardag en þar gæti Kjartan Dige leikið sinn fyrsta leik.
Slapp
Fotbolti.net

© Copyright 2002-2026 Fotbolti.net / Fotbolti Ehf. All rights reserved.