Siggi Raggi búinn að ákveða að hætta eftir tímabilið?

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð

Sigurður Ragnar Eyjólfsson.

Mynd: Fótbolti.net - Hafliði Breiðfjörð
Sögusagnir eru í gangi um að Sigurður Ragnar Eyjólfsson hafi tilkynnt Keflavík það að hann muni hætta þjálfun liðsins eftir tímabilið.
Keflavík er í neðsta sæti Bestu deildarinnar með aðeins tíu stig, liðið hefur ekki unnið síðan það lagði Fylki í fyrstu umferð. Keflavík er sex stigum frá öruggu sæti.

Sagt er að Sigurður hafi ákveðið að nota uppsagnarákvæði í samningi sínum að tímabilinu loknu.
Fótbolti.net hefur ekki fengið nein svör frá forráðamönnum Keflavíkur þrátt fyrir ítrekaðar tilraunir í dag.
Sigurður Ragnar tók við þjálfun Keflavíkur fyrir tímabilið 2020, fyrst sem aðalþjálfari með Eysteini Húna Haukssyni.
Undir þeirra stjórn komst liðið upp úr Lengjudeildinni á fyrsta tímabili þeirra saman og hélt svo sæti sínu í efstu deild. Eysteini var sagt upp í október 2021 og Sigurður verið einn aðalþjálfari síðan.