03.09.09 - 10:22
Jóhann Óli Eiðsson
Jan Vennegoor of Hesselink til Hull (Staðfest)

Vennegor í baráttu um boltann

Mynd: Getty Images

Vennegor í baráttu um boltann

Mynd: Getty Images
Hollenski framherjinn Jan Vennegoor of Hesselink hefur skrifað undir samning við úrvalsdeildarliðið Hull City. Samningurinn gildir til tveggja ára.
Hesselink, sem er þrítugur, gekk til liðs við Hull á frjálsri sölu en Celtic ákváðu að endurnýja ekki samninginn við hann er hann rann út í lok júní. Lok leikmannaskiptagluggans hafa engin áhrif því samningslausir leikmenn geta gengið til liðs við lið hvenær sem er.
Það hlýtur að vera léttir fyrir Phil Brown að hafa náð að fá Hesselink en hann hefur verið að eltast við framherja í allt sumar en meðal þeirra sem sögðu nei við samningstilboðum hans má nefna Michael Owen, Alvaro Negredo og Marlon Harewood.
,,Við hjá Hull City, erum ánægðir með að vinna kapphlaupið um undirskrift Hesselink og að hann sé kominn til liðsins,\" sagði stjórnarformaðurinn Paul Duffen.
,,Við vildum fá framherja í hæsta gæðaflokki sem skorar helling af mörkum og Jan hefur sýnt að það getur hann. Við þurfum fleiri mörk. Á seinasta tímabili skoruðum við ekki nóg af mörkum, við áttum það til að vera hættulegir fram á við en það vantaði einhvern til að klára færin.\"
,,Við höfum reynt að fá Jan síðan í júlí en hann hefur ekki viljað koma fyrr en nú enda voru margir aðrir möguleikar í boði. En hann vill spila í úrvalsdeildinni og þess vegna valdi hann okkur.\"

Heimild: Sky Sports